|
|
28.05.2009 22:23:18 / etna
Ég útskrifaðist frá Hússtjórnunarskólanum þann 14. mars síðastliðinn. Daginn áður fórum við í skólaferðalag. Fórum á Þingvelli, skoðuðum hella rétt hjá Laugavatni sem fólk bjó í árið 1904, já ég vissi það ekki. Kíktum svo á Laugavatn þar sem mín fékk menningasjokk. Ég hef alltaf haldið að Laugavatn væri bær, svona 3000 manns, en jújú, það var meira svona 3 hús sem ég sá. Ég leit út eins og fáviti þarna gapandi! Útskriftin var frábær í alla staði. Ég fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur, sem ég var mjög sátt með, fékk 9,06 í meðaleinkunn. Kvöldið eftir útskriftarferðina fórum við út að borða og kíktum svo á Oliver. Skemmtum við okkur allar konunglega, allavega ég, en vá hvað það var erfitt að kveðja! Ég kom vestur fyrir tveim vikum. Það er búið að vera rosalega erfitt að venjast öllu hérna aftur. Heimilin hjá mér og Ingólfi gætu ekki verið ólíkari, sauðburður var nýbyrjaður þegar ég kom og þá er mikil þreyta í gangi, ég þurfti að sofa í sófanum fyrstu dagana, var ekki með símann minn, venjast því að fá ekki húsómat í hádeginu og kaffi, vera ekki alltaf með húsóstelpunum, byrja að vinna, byrja að hreyfa mig aftur (hef varla hreyft mig síðan um áramótin) og vera ekki hjá INGÓLFI! Þetta var stór biti að kyngja fyrstu dagana, hehe. Það er samt svo frábært að vera hérna, ég elska Tálknafjörð, pollinn og bara mhmmm!!! Sauðburður gékk vel og ég held að ég fari með rétt mál þegar ég segi að ég er eina barn Marinós sem hefur þurft að hjálpa kind að bera! Þannig var nefnilega mál með vexti að ég átti að vera upp í fjárhúsum frá 12-2 eina nóttina. Ég hef nú aldrei þurft að gera mikið í sauðburði nema fylgjast með og þá hefur ekkert gerst. Það höfðu líka rosalega fáar kindur borið og svona. Raggi bróðir átti að vera kominn að leysa mig af, en svo var ein kindi bara komin á full power og ætlaði að skjóta lambinu í heiminn! Pabbi var búinn að segja mér að framlappirnar áttu að koma fyrst svo hausinn og að þessi kind væri ábyggilega bara með 1 lamb. Neinei hvað haldiði, kemur ekki bara haus? Ég hringi í Ragga, hann skellir á í svefni og það SLÖKKNAR á símanum. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég fór að því, en ég með mínar fíngerðu hendur stakk þeim bara þarna upp og reyndi eins og ég gat að ná lambinu, viti menn, ÞAÐ GAT ÉG! Lambið var það minnsta sem ég hef séð, þá fattaði ég að það væri pottþétt annað. Ég hljóp heim í fjárhúsgallanum, á túttunum með haugskítugar hendur, í a.t.h. MJÖG slæmu formi. Ég vakti pabba, var svo ótrúlega móð en náði að spíta fréttunum úr mér og við fórum uppeftir saman. Þá komu 2 lömb í viðbót, bæði pínulítil og sneru vitlaus. Pabbi var ekki jákvæður að þau myndu lifa, ennnnnnnnn þau gerðu það bara víst! Eftir þetta var ég bara komin með ljósmóður gráðu í þessu öllu saman og var upp í fjárhúsum mikið eftir það og hjálpaði nokkrum kindum í viðbót!!!! Ætla að enda bloggið á þeim fréttm líka að Sæla okkar eignaðist 6 hvolpa um daginn, og þeir eru sætustu hvolpar everevereverJ .. Ingólfur kemur svo á morgunn, og ég er farin að sofa!
 Allur hópurinn í peysunum sínum!
 My lovely ladys<3
Sigríður Etna
»
08.03.2009 17:48:59 / etna
Komnir næstum 3 mánuðir síðan? Vá. Ég veit að maður segir alltaf að maður hafi haft svo mikið að gera, en á þessum tíma hefur verið miiiiiiiiiiiikið að gera. 12. janúar byrjaði ég nefnilega í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík. Tíminn eftir það hefur einkennst af mikilli heimavinnu og hamingju. Námið á vel við mig og það eru alveg frábærar stelpur í skólanum, yndisleeegar. Ég er búin að vera að elda og baka, vefa, prjóna og sauma. Svo núna á mánudaginn skipti ég um hóp, fer í ræstingu og meiri handavinnu og hekl.
Þann 18. Janúar varð ég 18 ára gömul, sem var ótrúlega gaman. Sigga Árdal kom í bæinn og við, Ingó og Eydís Eva fórum út að borða. Um kvöldið var svo partý hjá húsóstelpunum, en litla sveitastelpan fann ekki húsið sem partýið var í, uhh varð örlítið fúl!
Ingó er alltaf á fullu í fótboltanum, hann æfir mér 2. flokk hjá Grindavík og meistaraflokk. Hann ákvað svo um daginn að kaupa sér nýjan bíl, Lexus IS-250. núna þorir mín fyrst að keyra TAKK fyrir... og ég fékk bílpróf síðasta sumar, hehe, vúps.
Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur í ungmennaráði UMFÍ. Núna á miðvikudagsmorgunn var ungmennaráðstefna á vegum UMFÍ á KEA-hótelinu á Akureyri. Það var alveg ótrúlega gaman á þessari ráðstefnu, ég lærði mikið og kynntist helling af fólki. Ég var líka rosalega heppin að það var vetrarfrí 4.-6. mars í Húsó, akkúrat þegar ráðstefnan var. Ingólfur fór svo á sjó þegar ég fór á ráðstefnuna, og ég ákvað að fara ekkert til Grindavíkur um helgina. Ég var því eftir hjá Siggu Árdal og helgin er búin að vera frábær. Fórum á árshátíð VMA, Páll Óskar var að spila, fórum svo í afmælispartý til Elvu á laugardeginum og á Kaffi Ak og skemmtum við okkur allsvakalega
Svo vaknaði ég í morgunn og allt á kafi í snjó. Því erum við vinkonurnar bara búnar að liggja í leti upp í rúmi í allan dag. Svo kemur í ljós í kvöld hvort það verði flogið eða ekki. Damdamdam. Annað sem er búið að gerast: það var foreldraboð í húsó hjá mínum hóp um daginn, mamma, pabbi, Ingó, Davíð og Kristinn komu með, óóótrúlega góður matur og gaman. Svo fór ég líka á ræðunámskeið um daginn sem var geðveikt skemmtilegt. Einnig kíktum við Ingó á Akureyri fyrir bara 2 helgum síðan, sem var einnig ótrúlega gaman Jæja, smá úrdráttur af því sem ég hef verið að gera. Ég skal vera duglegri núna.

Hópurinn minn, Guðmunda, Ingibjörg, Sigrún, Sunna, Bryndís, ég, Stella, Sunna Rós, Anna, Fjóla, Sólveig, Benedikta matreiðslukennari og Matthildur! -Fallegi maturinn sem við elduðum fyrir foreldraboðið.
 Að vefa rósabandið mitt (dúkur)
 Ein frá afmælinu mínu:*
SIGRÍÐUUUUUUUUUUUR ETNAAAAAAAAA
 Ein frá því í sumar!<3
»
30.12.2008 14:08:01 / etna
Ég er að njóta mín í botn hérna heima. Það er svo gott að vera hérna og núna er Ingólfur kominn og allt svo aaaaaah.. Fékk ótrúlega flottar jólagjafir og er mjög þakklát, arrrwww!! Við erum búin að spila og púsla öll kvöldin bara til skiptis, erum orðnir en betri „púslmeistarar“. Mamma er samt ekkert rosalega sátt við tengdasynina því þeir virðast alltaf vinna okkur í Scrabble, ekki gott! Svo er mamma búin að vera svo dugleg að baka að það er alltaf terta í eftirrétt eftir matinn, maður er orðin eins og nettur grís hérna.. fallega þykkur og svona 8-)!! Er farið að hlakka til að mæta í ræktina eftir áramót, og líka að fara í hússtjórnunarskólann!!!!!! Annars er ég að vinna í dag og var að vinna í gær oooog vinn á morgunn. Ingó er nú búin að eyða meiri tíma með bræðrum mínum heldur en mér, svo maður þarf ekkert að hafa áhyggjur að honum leiðist, hehe! Árný , Maggi og Tótimar eru komin vestur, svo það er en meira fjör hérna. Ég og Ingó ætlum svo að taka að okkur að vera headchefs í kvöld og ætlum að grilla bleikju og læææti,mhmmmmm!!! Og svo á morgunn fagnar maður nýju ári. Vonandi verður bara góð færð svo maður komist á ballið yfir á Patró.
Svooooooo takk fyrir árið 2008 og gleðilegt nýtt ár 2009. Blogga ekki fyrr en á nýju ári!! DAMDAMDAM

SIIIIIIIIIIIIIGRÍÐUR ETNA!!!
»
23.12.2008 23:12:59 / etna
Jóla, Jóla, Jóla, Jóla, Jóla, Jóla!
Óska ykkur öllum gleðilegra jóla. Hafið það gott á morgunn og svona yfir hátíðirnar. Ég ætla sjálf að liggja í miklu leti, lesa, sofa og slaka veeeel á með fjölskyldunni. Davíð bróðir var einmitt að koma í dag, svo núna erum við 6, 3 bræður, mamma og pabbi og svo litla, mooooi!
Ætla að láta link á óóótrúlega sætu myndbandi sem er bara of krúttlegt: http://www.youtube.com/watch?v=adYbFQFXG0U verðið að horfa, það kætir mann þó nokkuð(;
Svo er hérna eitt annað sem er af svo krúttlegri litli stelpu, ætla sko pottþétt að kenna Erlu Maren þetta seinna http://www.youtube.com/watch?v=1Y5AlxRruOU
Svo nokkur í viðbót: http://www.youtube.com/watch?v=Mrz49dnzKA8&feature=related http://www.youtube.com/watch?v=d1Fyqm9xQmk http://www.youtube.com/watch?v=_OBlgSz8sSM hahahhaa..
Tata.. maaaaaaaaaaaarry x-mas!
Sigríður(:
»
21.12.2008 20:28:48 / etna
Mikið er maður orðinn slappur.. Ég er komin heim á Tálknafjörð, eða kom reyndar 7. des, hehe. Það er búið að vera meira en nóg að gera. Er að vinna hjá sparisjóðinum og íslandspósti (sama húsið) og auðvitað eru allir að senda pakka og fá pakka , flesta dagana er maður á haus! Fyrstu vikuna lærði ég svo bara öll kvöld, því ég átti eftir að taka 2 próf af 4 hérna heima! Það var frekar fúlt, manni fannst eins og maður væri komin í jólafrí, en neeeei, maður var bara hálfnaður, darn. Einkunnirnar mínar fóru í algjört f**k! Ég hringdi og spurði konurnar á skrifstofunni um að faxa þær til mín (Fsu hefur víst alltaf gert það fyrir hin systkini mín), svo ég fengi þær alveg POTTÞÉTT fyrir jól, gellan sagði mér að vera slök, það tæki bara 1 dag að senda bréf í pósti til Tálknafjarðar, halló? Jújú, svo týndust þær og allt í mínus, eeen þær bættu mér það svo bara upp og á endanum föxuðu þær bara til mín, hohoho. Mér gékk allavega ágætlega, fékk 8 í íslensku og þýsku og svo 9 í náttúrufræði, hagfræði, stærfræði, tölvum og uppeldisfræði. Núna er maður sko orðin stúdent í íslensku, dönsku, ensku, stærfræði og náttúrufræði, vííííí! Svo lítið eftir eitthvað(: Þegar ég kom heim var Alli, Dúdda og litla ljónið hún Erla Maren hérna fyrir vestan. Sú stutta er nú meeeiri. Hún er bara 2 mánaða og er svipað stór og 6 mánaða barn, maður er komin með heaví vöðva eftir að halda á henni Svo er henni svo oft illt í maganum og þá lætur hún alllllveg heyra í sér. En það var allt í lagi, hún er svo ótrúlega sæt að það bætir alveg upp fyrir allan gráturinn. Núna eru bara 3 dagar í jólin, sem ég er ekki en að fatta. Maður er búin að vera í jólastússi, baka, skreyta, þrífa, sækja jólatré, jólakortadúlleríi og fleira. Davíð bróðir kemur svo á morgunn eða hinn og svo er stutt þar til Ingó kemur. Árný, Maggi og Tótimar koma svo milli hátíðina. Allt að gerast, myndi bara óska að Mæja væri heima líka, sakna hennar endalaust(: Jæja, ætla að fara að ryksuga og kíkja út, bleeeeeeeeeeess!
Sigríður Etna
 Svooo sterk stelpa!
 Allir að spjalla saman
 Litla ljón<3
 Aðalgellurnar í Ólátagarði
 Prinsessan<3
»
04.12.2008 22:02:15 / etna
Heyrðu okay ég ætla bara að klára þetta af! Þegar maður er semsagt ekki búin að blogga í meira en mánuð þá er MJÖG erfitt að blogga aftur. En ég get sagt ykkur það að ég bloggaði einu sinni. Bloggið var meira að segja alveg tilbúið, en þá datt það út. Þannig ekki bara kenna mér um, líka tölvunni takk!
Rosalega mikið hefur gerst síðan ég bloggaði síðast. Ég er semsagt búin að vera í FS að læra á fullu og er ég komin með kok ofan í þeim skóla já. Á Akureyri var maður miklu meira svona “welcome”, FS er enganveginn skóli fyrir mig. Heyrðu já 16. október fór ég til Amsterdam með fjölskyldunni hans Ingós. Pabbi hans var semsagt 50 þessa helgi og þetta var svona surpriseferð. Það var ekkert smá gaman. Þetta var semsagt í annað skipti sem ég fer til útlanda og vá hvað mér finnst það svo allt öðruvísi, eins og það séu svona allt öðruvísi reglur. Kannski líka út af því að ég var í landinu sem ALLT er nánast leyfilegt. Ótrúlegt land! Fórum í Rauða hverfið, ég hefði geta ælt! Hass út um allt, ansi venjulegt bara þar. Í Hollandi þarf maður líka bara að vera 16 ára til að komast inn á skemmtistaði og til að drekka, halló í húsinu. Fór upp á svona platform og dansaði með systir Ingós, haha.. fucking Icelanders!!! Síðustu helgi fór ég á jólahlaðborð Vísis. Það var bara fínt. Snemma næsta dag var svo skellt sér á Stokkseyri þar sem Dúdda systir og Alli voru að skíra litlu frænku. Það var ótrúlega skemmtilegt, litlan fékk líka þetta ótrúlega fallega nafn Erla Maren og svo vorum við svo mörg í fjölskyldunni samankomin, ahh. Árný spurði mig nokkrum dögum fyrir skírnina um að syngja eitthvað í skírninni og hún myndi spila á gítar. Árný byrjaði að æfa á gítar fyrir mjöööög stuttu, en við æfðum okkur smá fyrir skírnina og woula það tókst, hehe mjög gaman. Núna er ég búin í tveim prófum, íslensku 503 og náttúrufræði 113, bæði ótrúlega erfiðir áfangar, fékk lítinn tíma til að læra undir prófin, eeeeeeen það hafðist og mér gékk ágætlega. Næstu próf eru 12. og 15. desember, en ég tek þau próf heima. Núna um helgina er ég að fara á fund hjá ungmennaráði UMFÍ, en já var semsagt beðin um að vera í því, svo á mágur Ingós þrítugs afmæli og heldur upp á það á laugardaginn. Á Sunnudaginn FER ÉG SVO HEIM!!!!    Akkúrat núna er ég svo ánægð, búin að vera í því að slaka vel á í dag, er loksins að fara heim, Dúdda, Alli og Erla Maren eru líka þar, fer að vinna í Sparisjóðnum, JÓLIN AÐ KOMA, og svo eftir áramót er það no more venjulegur lærilærilæri skóli heldur Hússtjórnunarskólinn í Reykjavík takk fyrir túkall!! SUMAR OG SVO AKUUUREYRIIII!!
 Erla Maren í arsenalbúningnum frá mér og Ingó<3
FINALLY I DID IT! ..jei me (:
SIGRÍÐUR ETNA MARINÓSDÓTTIR
»
13.10.2008 21:13:26 / etna
Smá breyting.. það er minna en mánuðir síðan síðasta blogg var! húrra fyrir mér.
Ég ætlaði mér að vera svo dugleg í dag, það gekk ekki alveg. Ég lærði undir próf til hálf 3 í nótt, þýska og náttúrufræði, það var sko meget stress í gangi. Hélt í morgunn að ég væri mjög svo mikið veik þar sem mér leið bara engann veginn vel, fór í náttúrufræðiprófið. Stressið hélt nú vel áfram, mörg fiðreldri inn í maganum, eða meira svona fílar að dansa. Neinei, fer í þýsku í næstsíðasta tíma ( = búin að vera að drepast allan daginn úr kvíða) og þá segir kjéééllingin (í stuttu máli) að það væri ekkert próf, hún var bara að skrökva! ha-ha-ha? Ég var heldur betur ekki sátt! ..maginn er að jafna sig eitthvað núna
Ég fór á minningartónleika Vilhjálms Vilhjálmssonar um helgina já og ómææ, ég skemmti mér vel! Engir smá tónleikar, hef varla hætt að brosa síðan.
Annars ákvað ég að skella þessu bloggi inn þar sem hún mamma mín á afmæli í dag, 49 ára!! geri aðrir betur. Til hamingju með daginn mamma, þú ert langbest<3 .. like you know
 Sakna þeirra alltaf meira og meira:*
Já ég sakna marga, alltafalltafalltaf, finnst allir vera svo langt í burtu, Ma&Pa, Eydís, Freymar, María Berg, Sigga, Sonja, Andrea, Hrafnhildur, Alma og já Ester, allir. Guð sé lof fyrir Ingólf, hann er svo mikið yndislegasti kærasti sem hægt er að hugsa sér. ahh<3
I aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaam a princess!
Enda þetta á einni flottri mynd af sætu systrum mínum með fallegu börnin sín:

Sigríður Etna.. þessi sem er að fara að soooofa núna!
»
06.10.2008 23:22:55 / etna
Biðst afsökunar á öllu draslinu sem kemur, broskallarnir og url-in! veit ei af hverju þau eru þarna!
Jæja!..
Hvernig væri að sleppa einu bloggi með orðinu kreppa? (hahh, ekki hægt
lengur!) Nei, þessi umræða er útum allt, maður skilur sumt, ekki allt, æji
nógnógnóg.. í biliii. marttagtype namespaceuri="urn  chemas-microsoft-com  ffice  marttags" name="State"> marttagtype namespaceuri="urn  chemas-microsoft-com  ffice  marttags" name="City"> marttagtype namespaceuri="urn  chemas-microsoft-com  ffice  marttags" name="place">
Freymar og Eydís farin.. kveðjupartýið á Glaumbar já og skemmti ég mér vel. Þar
voru margir Tálknfirðingar og slatti af systkinunum mínum.  Ég og Eydís Eva, sexy ladies!
 Our P.I.M.P
 Nei, hvaðahvaða, mikið eru þetta falleg systkini
marttagtype>marttagtype>marttagtype> marttagtype namespaceuri="urn  chemas-microsoft-com  ffice  marttags" name="State"> marttagtype namespaceuri="urn  chemas-microsoft-com  ffice  marttags" name="City"> marttagtype namespaceuri="urn  chemas-microsoft-com  ffice  marttags" name="place">  frk. ég veit ekki hvernig ég á að haga mér innan tveggja Eydísa!
Dúdda systir og Alli eignuðust gullfallega prinsessu
þann 1. október. Kíkti í heimsókn um helgina, svo mikið yndi<3 : marttagtype>marttagtype>marttagtype> marttagtype namespaceuri="urn  chemas-microsoft-com  ffice  marttags" name="State"> marttagtype namespaceuri="urn  chemas-microsoft-com  ffice  marttags" name="City"> marttagtype namespaceuri="urn  chemas-microsoft-com  ffice  marttags" name="place"> 
Annars, eins og alltaf, þá hefur maður ekkert að segja. Allavega ekki þegar
maður bloggar með svona löngu millibili, maður gleymir öllu! Ég get
allavega sagt ykkur að ég þoli ekki hag113 og að ég var að borða brownies fyrir
smástund, aaaaaaah. (Sigga, þú kenndir Ingó vel !) Já, ég er ekki að meika suma
áfangana sem ég er í og er eiginlega komin með oní kok á skóla, sérstaklega þar
sem maður ég er búin að læra stanslaust síðan byrjun 10. bekkjar, sumur og
alles. T.d. í þýsku, við erum að tala um hvað ég elska þýsku endalaust mikið og
vill vera góð í henni. Fékk 8 í 103 og 9 í 203 og allt gott. Núna er ég með
gúgú kennara og ég fæ 4,6, 2,2 og 2.0, halló í húsinu, ég skil ekki neitt en
legg mig samt alla fram. ARG PARG! JÁ, ég hef því ákveðið að sækja um í
Hússtjórnunarskólanum í Reykjavík eftir áramót. Hann er 1 önn og þar verður mín
flott á því bara að t="on">lace w t="on">eldalace>,
þrífa klósett, prjóna ullapeysu og læææti. Hafragrautur103
og klósettþrif103, hehe, samt ekki.
Jújú, margt hefur gerst, hvaðahvaða! Ég fór eina helgi heim um daginn,
sem var endalaust gott! Mamma og pabbi komu svo síðustu helgi í bæinn,
dýrkadýrkadýrka þegar þau koma, jafnvel þótt ég hitti þau bara í ogguponsí
stund (fannst mér allavega). Ég kíkti á sjávarútvegssýningu og svona
skemmtilegtheit joooojooo. Guð hvað ég get ekki beðið eftir að klára þessa önn
og fara heim í jólafrí, mhmm jólafrí! Heyrðu jú!
Í síðustu viku var maginn tate w t="on">lace w t="on">minnlace>tate>
svona rosalega skrítinn, eitthvað sem tengist pestinni sem hefur verið að ganga
ábyggilega. Svo var pantað pizzu eitt kvöldið og ég var alveg vel södd. Svo um
kvöldið fór ég úr peysunni (var í víðri peysu) og þá kom í ljós þessi SVAKA
bumba. Fékk eitthað óþol út af gerinu eða einhvern aaaandskota: 
ert þú líka hrædd/ur?
Svo um helgina er maður að fara á VillaVill tónleikana, .. sorry mamma! />
Þetta
kvekkendi er bara orðið slatta langt.. svo ég er farin að sofa, góða nótt!
marttagtype>marttagtype>marttagtype>
»
30.09.2008 21:26:28 / etna
hann er bráðlegur... blogg-urinn.
»
11.09.2008 08:58:15 / etna
I think it's time! ..það er annaðhvort að blogga eða lesa sjálfstætt fólk.. og ég held að ég eigi bara eftir að sofna ef ég fer að lesa.
Skólinn er byrjaður á fullu, hann er svona semí. Þetta er dáldið mikill klíkuskóli, kom mér mjög á óvart. Allt er rosalega borðaskipt og maður verður sko að passa sig hvar maður situr, dáááldið ólíkt VMA. Fyrstu dagarnir voru frekar erfiðir, var alveg búin á þv. Það tekur greinilega mikið á að vera í kringum 800-900 manns og þekkja ekkert andlit. En þetta er farið að skána, sem betur fer!
Ljósanótt var síðustu helgi og mamma og pabbi komu einnig þá helgi. Skemmti ég mér bara frekar vel. Var samt svo löt og nennti ekki að standa í því að reyna að komast einhverstaðar inn. Ég bað Ingó að koma með mér að fá köku og við fórum á Ránna. Ég vissi samt ekkert hvernig staður það væri, hélt það væri svona kaffihús e-ð. En þá var 22 ára aldurstakmark inn, enda var mér sagt seinna og maður tók líka eftir því að þetta var svona "staður fyrir aðeins eldra fólk en maður sjálfur" if you know what I mean, hehe (reyndi að fara fínt í þetta ). Meðalaldurinn var svona já, sirka 45. Við borðuðum kökur í gúddí fýling, en svo þurfti Ingó að skreppa aðeins og ég kíkti á dansgólfið. Þar voru tvö hjón og kallinn sagði við mig að ég væri svo ein og lítil, að ég ætti að koma að dansa við þau. Fyrsta sem ég hugsaði var ,,AKWARD" En ég gat nú ekki verið dónaleg og dansaði við þau. Kallinn var líka svona rosa duglegur að ýta öllum strákum og köllum í burtu frá mér, var með gott danssvæði get ég sagt ykkur . Svo þegar Ingó kom til baka komst hann ekki inn og sendi fólk að leita að mér og engum datt í hug að leita á dansgólfinu þar sem mín var sko að rokka feitt með "eldra fólkinu".. (höörm ) Á endanum komst Ingó svo inn, en ég gat varla dansað við hann, því allar kéllingarnar voru æstar í að fá að dansa við kauða, hehe. Pínu þorrablót tilfinning, líkaði það.
Um helgina er kveðjupartý hjá Freymari bróður og Eydísi Huldu. Fyrir þá sem ekki vita þá eru þau að fara til Ástralíu og Nýja-Sjálands í 8 mánuði. Vá þetta verður erfiður vetur, enginn María né Eydís. Ég er farin að sakna Mæju of mikið og það er bara komin aðeins meiri en mánuður síðan hún fór, tsktsk.
Annars sit ég hérna í Tækniskólanum í Reykjavík að bíða eftir að Ingólfur sé búinn í tíma. Ég er nefnilega að fara til læknis kl. 12 og 14 í dag og fór bara með honum í bæinn. Kannski maður ætti að fara að lesa Sjálfstætt fólk? .. Æji allavega, er farin, þetta er búið..
Sigríður Etna
»
09.09.2008 21:52:23 / etna
..núna fer bráðum að koma blogg... meina common...!!
..mikið sakn í gangi
»
20.08.2008 00:22:09 / etna
*vandræðilegt Sæþórs vink* uhhhuuu, Halló....? taka smá keyrslu.. Ég er flutt frá Tálknafirði (í bili allavega) ooog hætt í bankanum. Mér fannst gott að vinna þar já, Birna, Sædís og Eygló voru góðar við mig, arwww. Síðasta daginn minn fóru allir sem vinna hjá Sparisjóðinum og póstinum heima út að borða til að "fagna" að mín var að hætta, neeei segi svona. Svo voru danskir dagar mjög fínir líka. Hittum Aron og Guðna (voru með okkur í VMA) og kærustur þeirra, Siggu og Önnu og það var vægasagt dansað. Er komin í Grindavík og búin að planta mér ágætlega niður hérna í herberginu hans Ingós, múhaha. Þessi vika verður góð þar sem skólinn byrjar ekki almennilega fyrr en á föstudaginn. Er búin að fara út að hlaupa, út að hjóla, bláa lónið og slaka vel á já, er líka að taka út helling af svefn sem ég sleppti dáldið oft í sumar (finnst mér allavega, kannski ekki mömmu ). Á morgunn verður svo stundataflan sótt, keyptar bækur, hitt Dúddu systir og eitthvað voðalega skemmtileg jájá. Tannsi pannsi verður heimsóttur á fimmtudaginn, jeihei og einnig verður eitthvað verslað, hoho. Menningarnótt er um helgina verður þú þar? Hef einar fréttir, hið ómögulega gerðist! Ég virkilega VIRKILEGA náði dönsku!!!!!!! Sem ég skil eiginlega ekki hvernig ég fór að. Og ég fékk ekki 4.5 í prófinu heldur 6.1, ójá! Allavega, í lokaeinkunn fékk ég 7 í dönsku og svo fékk ég 8 í sögu, ég er ágætlega sátt bara. En nóttnótt núna, svefnnnnnnnnn.. ZzzzzZZ
»
13.08.2008 10:57:46 / etna
Kominn meira en tími til.. ennnn en og aftur nóg að gera.
Við ákváðum í hádeginu á föstudeginum fyrir versló að fara á Akureyri, sem við gerðum. Hittum Siggu, Sog og Baldvin, mjög fín helgi. Það var 80's þemi sem ég hafði lítinn sem engann áhuga á en svo allt í einu varð áhuginn bara mikill og maður var vel "skreyttur":  Sigríður Etna
 Svala fóóóólk
 Sonja og Ógni
 Fullu og leiðinlegu gellurnar í Sjallnum
Sumarfjarnámið er búið.. langar nú varla að skrifa um það en. JÁ, ég ákvað í sumar að reyna að vinna örlítið í prófkvíðanum mínum elskulega = læra minna en vanalega og vera ekki með neinar væntingar til mín um að fá háar einkunnir. í sumar var ég með eina 7 í einu verkefninu og svo yfir 9 í öllum öðrum. Þannig vinn ég, hátt fyrir verkefni-prófkvíði-lágt í prófum og svo hækka verkefnin mig upp. En já, svo í dönskuprófinu, eftir 1 og hálfan tíma var ég búin með 4 bls af 10 og hálftími eftir. Þá gerðist dulítið sem hefur bara aldrei gerst áður, sem kom mér jújú á óvart, fór öll að skjálfa og grenjaði svo úr paniki.. gat ekki hugsað neitt! ..ég er með bókað fall, sem mér finnst ÖMURLEGT já !!!!
Annars hittum við þjóðverja í Pollinum fyrir viku sem voru í sjóstangsveiðinni og nei ótrúlegt en satt þá voru þetta ekki 50 ára gamlir, fullir kallar með ístru sem töluðu bara þýsku heldur voru þetta 3 systur og tveir kærastar tveggja þeirra. Við fórum að snakke sammen og hittumst svo bara á hverjum degi eftir það. Ekkert smá skemmtilegt fólk og í lok vikunar sýndu þau okkur mynd af húsinu þeirra og sumarhúsunum. Þá voru bara sundlaugar og læti. Þau ferðast alveg shittafokka mikið, sýndu okkur myndir af snekkjunni þeirra í Tyrkneska hafinu, eigum við að ræða það eitthvað? Þau fengu að fara á hestbak hjá okkur nokkra dagana, síðasta daginn datt ein systrana, glóðurauga og þurfti að halda á henni út um allt, garrnnn. Svo gáfu þau mér disk með þýskum lögum sem ég á eftir að misnota allsvakalega.
Þau buðu okkur að kíkja í heimsókn til Þýskalands eða London (þau eiga íbúð þar líka sem eitt parið er í á veturnar) sem mér leist vel á en Ingó svona já semí. Svo einn daginn fóru þau að tala um Autobahn (hraðbrautirnar) í Þýskalandi og hvað þau hafa keyrt hraðast og Konstantín sagði ,,ég fór 300 á porshinum mínum" þááááá kveiknaði sko í Ingó ,,Uhh, getum við farið næsta sumar"? Kallinn ánægður með porshinn sko, haha Jæja, svo sunnudagskvöldið buðu við þeim og pabba þeirra, frænda og vin pabba þeirra að koma í kaffi. Pabbinn var svo ótrúlega ánægður að ég skildi einhverja þýsku að hann bauð mér að koma til Þýskalands, vera í gestaíbúðinni þeirra til að læra þýsku!!!! Já það borgar sig sko að taka vel eftir í þýskutíma! haha.
Allavega, flytja á föstudag/laugadag, danskir dagar.. jájá og svona eitthvað. Fariiin, langur bloggur..
Sigríður Etna
»
31.07.2008 13:43:59 / etna
Arg.. þetta var svo soldid, maður fór bara á unglingalandsmót og ekkert vesen. Fyrst Tálknafjörður, seinna Stykkishólmur, Ísafjörður, Sauðarkrókur, Vík í Mýrdal, Laugar og Höfn í Hornarfirði. En núna.. vesen! Ég og Ingó erum semsagt hálvitar. Við ákváðum í maí að hætta við að fara til Eyja og fara bara næsta ár og í þessu augnabliki man ég akkúrat engannveginn ástæðuna. Mig langar svooooo mikið að fara! Ingó nennir ekki að keyra alla leið til Akureyrar, sem ég skil 100%. Nenni alveg að keyra norður, en til baka?, hell no. Af hverju getur maður ekki smellað puttunum saman og þá er maður bara mættur? Mig langar að hitta svo marga þar og helst Siggu, sem er samt að vinna frá 10 um morguninn-11 á kvöldin alla daga! I don't like it. Núna erum við hætt við að fara á Akureyri semsagt, en málið er að mig langar bara eeekkert að vera heima, ekki neitt! Það eru fullt af fólki að koma og svona. En ég nenni bara ekki að vera heeeimaheima. Varð að tjá mig, mikill pirringur hér á ferð.. langar bara svo að gera eitthvað aweeeeesome, með sem flestum.. ..og það er ekki hægt, argarg.  bílpróf, úaúa
»
29.07.2008 14:47:03 / etna
Jæjajæja.. er komin langur tími eða hvað?
Það er sko margt að frétta, maður er búin að hafa helling að gera og er ég bara hamingjusöm í dag, í dag! Búin að fara t.d. á sjóræningjasetrið, safnið á Hnjóti, Látrabjarg og Völlinn. Maður labbaði svo upp á Tunguvatn í fyrsta skipti, sem er til skammar þar sem afi minn á þetta vatn og ég held bara að allir úr fjölskyldunni hafi farið uppeftir nema ég. Til hamingju Sigríður, loksins eftir 17 góð ár *klappklapp*. Var reyndar ekkert svaka góð reynsla, þurfti að grilla hamborgara í grenjandi rigningu, not cool! Fjarnámið er búið að vera deadly boring, skila mörgu síðustu daga. Fyrsta skipti sem ég hef hugsað ,,ég ætla bara að ná og þá er ég sátt“, mér finnst danska bara því miður ekki skemmtileg. Maður tók líka einn daginn og las fyrir bílprófið, sem ég náði. Núna er það bara að þoooora að keyra og þá kemur vonandi æfingin Tálknafjör var um helgina og var helgin alveg frábær! Ratleikur, brenna, dorgveiðikeppni, tónleikar, grillveisla, útimarkaður, farið á Hópið, kaffihúsakvöld, já maður gerði sko margt! Var nú reyndar næstum farin að grenja á sjálfu kaffihúsakvöldinu. Ég semsagt ætlaði að vera rosalega sniðug að fá far með mömmu niðureftir og því mætt fyrr. Ég borgaði mig bara inn eins og allir aðrir en svo var ég fengin til að gera eitthvað smotterí fyrir nefndina sem endaði þannig að ég þurfti að vinna í einhverja 3 tíma. Það er samt allt í lagi svosem, nema guð minn góður hvað fólk var ekkert smá dónalegt við mig, og flest allir voru það Tálknfirðingar. Fannst það svona alveg frekar hallærislegt af fullorðnu fólki. En jæja, veðrið var líka frábært og gerði það gæfumun, lalala. Sunnudaginn fór ég svo í smá ferðarlag með Ingó, mömmu hans og pabba og mömmu minni og pabba, það var bara í "stutta" 10 tíma, jáhá maður var alveg búin þegar maður kom heim! Svo er María Berg að fara til Danmerkur sem skiptinema í eitt ár núna í dag, sem er mjög svo ekki gaman fyrir mig, en frábært fyrir hana auðvitað! Ætla eiginlega ekkert bara að skrifa neitt meir um það því ég verð svo leið. Þetta er orðið langtlangtlangt! Versló um helgina, og er það Akureyri..
»
Síður: 1 2 3 ... 29
|
Heimsóknir
Í dag: 1 Alls: 102231
Könnun
Eurobandið eftir að meika það?
Já
1 atkvæði
Nei
2 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 3
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 maí
|